Skólanámskrá

Skólanámskrá og skólareglur

Námskránni er ætlað að vera í senn starfsáætlun skólans, góð lýsing á því sem gert er í skólanum og upplýsingarit fyrir nemendur og foreldra, sem og kennara.

Í skólanum er nú kennt á hljóðfæri úr öllum hljóðfærafjölskyldunum.

Hlutverk og markmið

Megin markmið Tónskóla Eddu Borg er að veita almenna tónlistarfræðslu og vinna að eflingu tónlistar á sem víðasta grundvelli.

Þessum markmiðum hyggst skólinn ná með því:

  • að annast kennslu í hljóðfæraleik ásamt kennslu í öðrum tónlistargreinum sem gert er ráð fyrir í aðalnámskrá tónlistarskóla útgefinni af menntamálaráðuneytinu.
  • að búa nemendum fjölbreytt skilyrði til að þroska tónlistarhæfileika sína og sköpunargáfu.
  • að leggja áherslu á félagslegt gildi tónlistariðkunnar með þáttöku nemenda í samleik og hljómsveitarstarfi.
  • að annast kennslu í tónlist þannig að nemendur verði góðir og virkir hlustendur.
  • að búa nemendur undir áframhaldandi nám í tónlist.

Í aðalnámskrá segir að tónlistarskólar gegni fjölbreyttu hlutverki í samfélaginu. Þeim beri að stuðla að öflugu tónlistarlífi jafnframt því að vinna að aukinni hæfni, þekkingu og þroska einstaklingsins. Skólanum ber að taka tillit til mismunandi áhugasviðs, getu og þroska nemenda sinna. Kennsluaðferðir og viðfangsefni þurfa því að vera fjölbreytt og sveigjanleiki í skólastarfi er nauðsynlegur.

Hagnýtar upplýsingar

Til foreldra

Gott samband milli heimilis og tónlistarskóla er afar þýðingarmikið, ekki síst með tilliti til þess að tónlistarnám er að mestu leyti sjálfsnám sem fram fer á heimili nemenda. Mikilvægt er því að koma á og viðhalda traustu sambandi milli skóla og heimila. Þetta samband má byggja upp með ýmsum hætti, svo sem með bréfum, símtölum, viðtalstímum og heimsóknum aðstandenda nemenda í skólann, allt eftir aðstæðum.

Foreldraviðtöl eru haldin ár hvert. Foreldrar eru hinsvegar hvattir til að hafa samband við kennara eða skólastjóra hvenær sem þurfa þykir.

Ungum nemendum þarf að hjálpa við að skipuleggja æfingatíma sinn vel. Árangursríkara er að ungir nemendur æfi sig oftar og skemur í senn, en sjaldnar og lengur. Daglegar æfingar eru nauðsynlegar til að eðlilegar framfarir eigi sér stað. Ef nemandinn sýnir merki um leiða í námi er oft nóg að hafa samband við kennara og skipta um viðfangsefni til að glæða áhugann á ný. Áhugi foreldra og annara aðstandenda skiptir miklu máli og eru foreldrar hvattir til að sækja vel tónleika og fylgjast með framförum barna sinna.

Nótnabækur eru ekki innifaldar í skólagjöldunum. Foreldrar eru því beðnir um að gera ráð fyrir kaupum á einhverjum nótnabókum yfir veturinn. Að koma sér upp góðu nótnabókasafni er mjög mikilvægt fyrir nemandann.

Innritun og Skólagjöld

Innritun nemenda fer fram að vori og greiða nemendur staðfestingargjald um leið og umsókn er skilað inn til skrifstofu. Staðfestingargjald er ekki endurgreitt komi nemandi ekki í skólann að hausti.

Tekið er á móti umsóknum nýrra nemenda að vori og að hausti.

Ganga þarf frá skólagjöldum fyrir allt skólaárið áður en niðurröðun og kennsla hefst. Skólagjöld er hægt að greiða í einu lagi og með raðgreiðslum kreditkorta.

Skólaárið skiptist í haustönn og vorönn. Ef nemandi hættir á miðri önn færst skólagjaldið ekki endurgreitt. Ef nemandi ætlar ekki að stunda skólann á vorönn, þarf að láta skrifstofu vita fyrir 1. desember til að fá seinni önnina endurgreidda.

Skólagjöldum er ætlað að standa undir öllum rekstrarkostnaði skólans.

Systkinaafsláttur er veittur; 10% af öðru og þriðja barni og 20% af fjórða barni.

Leiga á hljóðfærum

Skólinn lánar strengjahljóðfæri í litlum stærðum til nemenda.

Foreldrar/forráðamenn nemenda sem hafa hljóðfæri á leigu bera fulla ábyrgð á þeim. Gerður er leigusamningur að hausti þar sem foreldrar skrifa undir og leigugjald er greitt.

Hljóðfæri í útleigu eru ekki tryggð að hálfu skólans. Við bendum því foreldrum eindregið á að tryggja þau. Allt viðhald hljóðfærisins á leigutímanum svo og skemmdir af völdum slæmrar meðferðar eru á kostnað leigutaka. Það er stranglega bannað að lána hljóðfærin til þriðja aðila.

Inntökuskilyrði

Rétt til skólavistar hefur hver sá er áhuga hefur á tónlistarnámi því sem skólinn býður upp á. Þurfi hinsvega að takmarka fjölda nemenda í einstökum námssviðum er skólanum heimilt að beita tímabundnum hæfnisprófum.

Nemendur hefja nám sitt í flestum tilvikum í forskóla og velja sér síðan hljóðfæri eftir eins til tveggja ára nám þar.

Krafist er góðrar ástundunar og heimavinnu.

Hljóðfæranám og námskröfur

Skólinn kennir eftir Aðalnámskrá útgefinni af Menntmálaráðuneytinu.

Hljóðfærakennarar semja einstaklingsbundna námsáætlun fyrir hvern nemanda, sem tekur mið af þroska hans, áhuga, vinnugleði og næmni. Munur getur verið á yfirferð nemenda, sumir vinna hraðar, aðrir hægar. Hljóðfæranám byggir á heimavinnu nemandans, þ.e. reglubundnum daglegum æfingum á hljóðfærið. Góðar æfingavenjur lærast smám saman eins og annað.

Áfangapróf eru tekin þegar nemandinn er að mati kennara tilbúinn til þess og hefur tileinkað sér hæfilegt námsefni úr viðkomandi stigi samkvæmt hljóðfæranámskrá.

Allir nemendur skólans taka vorpróf.

Nemandi tekur þátt í opinberum tónleikum a.m.k. einu sinni á ári.

Forskóli

Forskólinn skiptist í þrjár deildir; Forskóla O fyrir 5 ára börn, (einu sinni í viku 45 mín.) Forskóla I fyrir börn 6-7 ára (tvisvar sinnum 45 mín á viku) og Forskóla II (tvisvar sinnum 30-45 mín á viku, fer eftir fjölda nemenda í hóp) fyrir börn 8-9 ára. Markmið forskólans er að búa nemendur sem best undir hljóðfæranám. Nemendur fá alhliða þjálfun í tónlist. Mikið er lagt upp úr að nemendur læri tónlist í gegnum söng, hlustun, hreyfingu, leik og sköpun. Ýmis tákn og hugtök tónlistarinar eru kynnt og nemendum er kennt að leika á ásláttarhljóðfæri. Einnig læra nemendur að leika á blokkflautu. Félagslegi þátturinn er mjög viðamikill í forskólanáminu, þar sem kennt er í hópum.

Hljóðfæradeildir

Hljóðfæranám fer í flestum tilfellum fram í einkatímum og fá nemendur eina klukkustund á viku sem oftast er skipt í tvo hálftíma.

Miklar breytingar hafa vetið gerðar á Aðalnámskrá Tónlistarskólanna að undanförnu og er námsferlinu nú skipt í grunnstig, miðstig og framhaldsstig. Misjafnt er hversu lengi nemendur eru að taka hvert stig en almennt eru nemendur lengur að ljúka stigum eftir því sem ofar dregur. Þetta er einnig misjafnt milli hljóðfæra.

Miðað er við að nemendur kynnist sem flestum tónlistarstefnum í náminu. Nemendur eru hvattir til að leika af fingrum fram til jafns við hefðbundinn nótnalestur.

Nemendum gefst kostur á að taka þátt í ýmiskonar samspilum og hljómsveitarleik. Nemendur í hljóðfæranámi sækja einnig tíma í tónfræðagreinum.

Skólinn býður upp á kennslu á eftirfarandi hljóðfæri:

Píanó Fiðla Þverflauta Trompet
Harmonika Selló Klarinett Básúna
Slagverk/trommur Bassi-rafbassi Saxófónn Horn
Hljómborð Kontrabassi Fagott
Söngur Gítar-rafgítar Óbó

Tónfræðagreinar

Tónfræðagreinar eru skilgreindar í aðalnámskrá sem; tónfræði, hljómfræði, tónheyrn, tónlistarsaga, formfræði og kontrapunktur. Í grunn- og miðáfanga tónfræðanáms er ekki gert ráð fyrir hefðbundinni greinaskiptingu heldur samþættu námi þar sem inntak fyrrnefndra greina fléttast með ýmsum hætti saman við margvíslega virkniþætti svo sem hljóðfæraleik, söng, hreyfingu, lestur nótna og skráningu, hlustun, greiningu og sköpun. Sú nýbreytni hefur orðið í Tónfræði, að nú sækja nemendur sér tíma, Tónlist, (I, II, III, IV og V), sem ná yfir alla þessa þætti.

Nemandi sem tekur stigspróf í hljóðfæraleik þarf að hafa lokið tónfræði sem er ekki meira en einu stigi neðar en stigsprófið á hljóðfærið.

Tónleikar og Tónfundir

Opinberir nemendatónleikar eru haldnir í Seljakirkju a.m.k. þrisvar sinnum yfir skólaárið.  Einnig hafa nemendur leikið á tónleikum utan hverfisins og við ýmsa atburði á vegum Reykjavíkurborgar, Seljakirkju svo og við ýmiskonar tækifæri eins og á Sumardaginn fyrsta og fl.

Mikil áhersla hefur alltaf verið lögð á að nemendur þjálfist í að koma fram fyrir áheyrendur alveg frá byrjun tónlistarnámsins. Tónleikasókn hefur einnig mikilvægt gildi fyrir nemanda í hljóðfæranámi, þar sem hann lærir að hlusta á aðra flytja tónlist á hin ýmsu hljóðfæri.

Áhersla er einnig lögð á að nemendur undirbúi vel tónleikaverk sín og æskilegast er að leikið sé utanbókar.

Tónleikagestum ber að sýna flytjendum tilhlýðilega virðingu s.s. gefa gott hljóð og forðast óþarfa umgang og vera þannig góð fyrirmynd fyrir yngri áheyrendur.

Það er á valdi hvers kennara að skipuleggja tónfundi. En tónfundir hafa mikið félagslegt gildi og er góð þjálfun í tónlistarflutningi.

Námsmat

Eins og segir í Aðalnámskrá er námsmat öll viðleitni til að leggja mat á árangur skólastarfs og hvernig tekist hefur að ná settum markmiðum.

Megin tilgangur námsmats er að örva nemendur, aðstoða þá við námið og örva til sjálfsmats. Mat þarf að vera óhlutdrægt, heiðarlegt og sanngjarnt. Meta þarf alla þætti námsins svo sem skilning, þekkingu, leikni og framfarir. Matið þarf að gefa glögga mynd af námi og kennslu í skólanum.

Áfangapróf

Í nýrri Aðalnámskrá fyrir Tónlistarskóla eru kynnt svokölluð áfangapróf.

Náminu er þá skipt niður í Grunnnám (1.-3. stig), Miðnám (4.-5. stig) og Framhaldsnám (6.-7. stig).

Grunnnáminu lýkur með Grunnprófi. Miðnámi með Miðnámsstigi og námi á framhaldsstigi lýkur með Framhaldsprófi.

Áfangaprófum er ætlað að tryggja ákveðna festu, aðhald og lámarkskröfur í náminu. Stefnt verður að því að sérþjálfaðir prófdómarar fari á milli skóla og dæmi.

Þetta kerfi felur í sér breytingar frá fyrri stigaskiptingu. Stigin innan Grunnnáms verða umfangsminni en fyrstu stigin í eldra kerfinu.

Námstími verður eins og áður breytilegur og ræður þar mestu aldur og þroski nemandans.

Í Grunnnámi er miðað við að nemandi byrji 8 til 9 ára gamall. Gera má ráð fyrir að eldri nemendur fari hraðar yfir. Í Mið- og Framhaldsnámi eykst umfang námsins og lengist tíminn sem tekur að ljúka hverju stigi að sama skapi.

Menntamálaráðuneytið gefur út námskrár fyrir einstök hljóðfæri þar sem fram koma viðmiðunarverkefni fyrir einstök stig. Stigsprófin eru flest tekin í mars eða í byrjun maí, en þau má einnig taka á öðrum árstíma.

Þegar nemandi lýkur stigsprófi fær hann sérstakt skírteini sem er afhent við skólaslit. Hliðargreinarnar eru hluti af stigsprófinu og þarf að ljúka prófi í þessum greinum til að stigsprófið sé fullgilt.

Vorpróf

Vorpróf eru tekin á hverju vori áður en skóla lýkur og er miðað við að nemandi leiki tvö verk ásamt tónstiga. Tónfræðapróf eru munnleg og skrifleg.

Forskólanemendur taka einnig vorpróf þar sem þeir leika tvö lög á blokkflautu ásamt léttum eftirhermu-laglínum og hryn.

 

Skólareglur

  1. Nemendum ber að mæta stundvíslega í hljóðfæra- og hóptíma. Veikindi og aðrar fjarvistir ber að tilkynna til skrifstofu, af forráðamanni, eins tímanlega og unnt er.
  2. Kennara ber ekki að bæta upp fjarvistir nemanda t.d. vegna veikinda þeirra eða annara leyfa.
  3. Nemanda ber að ganga snyrtilega um skólann og eigur hans.
    1. Nota snaga í anddyri fyrir yfirhafnir og skila skófatnað eftir í anddyri.
    2. Ganga vel um skólahúsnæðið og eigur skólans.
    3. Forðast hávaða á göngum.
    4. Fara vel með bækur.
  4. Hegðun  nemanda ætti alltaf að vera til fyrirmyndar. Ef upp koma hegðunarvandamál áskilur skólinn sér rétt til að taka á slíkum málum í góðri samvinnu við foreldra.
  5. Nemanda ber að fara vel með leiguhljóðfæri og önnur hljóðfæri skólans. (Ekki að lána óviðkomandi, leiguhljóðfæri).
  6. Foreldrar sem hafa á leigu hljóðfæri hjá skólanum vegna barna sinna gera leigusamning við skólann.
  7. Valdi nemandi skemmdum á hljóðfærum eða eigum skólans ber forráðamanni að bæta skaðann.
  8. Nemandi mæti stundvíslega og snyrtilega klæddur á tónleika skólans. (A.m.k. 15-20. mín. fyrir tónleika).
  9. Ætli nemandi að koma fram utan skólans ber að tilkynna það kennara með góðum fyrirvara. Kennari getur þá aðstoðað nemandann við æfingar og gengið úr skugga um að flutningurinn sé vel frambærilegur.
  10. Ef kennari veikist og tími fellur niður er alltaf reynt að ná sambandi við heimili nemanda eða vinnustað foreldra. Kennara ber ekki skylda til að bæta nemanda upp þær kennslustundir sem falla niður vegna veikinda hans. Ef kennari er hinsvegar veikur til lengri tíma ber skólastjóra að sjá til þess að forfallakennari verði fenginn á meðan.

Aftur Upp